Phil Foden hefur tímabundið yfirgefið herbúðir enska landsliðsins sem nú er á EM í Þýskalandi. Ástæðan er uppákoma í fjölskyldu hans.
Enska knattspyrnusambandið staðfestir þetta og að leikmaðurinn sé farinn heim til Englands, en ekki kemur nánar fram hvað er um að vera.
Foden, sem er á mála hjá Englandsmeisturum Manchester City, byrjaði alla leiki Englands í riðlakeppninni. Enska liðið vann sinn riðil á 5 stigum þrátt fyrir afar ósannfærandi frammistöðu í öllum leikjum.
England á leik í 16-liða úrslitum á sunnudag en andstæðingurinn verður annað hvort liðið sem hafnar í þriðja sæti D eða E riðils.