Harry Kane fyrirliði enska landsliðsins þénar 72 milljónir króna í hverri viku hjá FC Bayern. Enski framherjinn fór til Bayern síðasta sumar og þénar 410 þúsund pund á viku.
Kane hefur nokkra yfirburði í enska landsliðinu þegar kemur að launapakka en Jude Bellingham er með 340 þúsund pund á viku hjá Real Madrid.
Óhætt er að fullyrða að Kobbie Maino miðjumaður Manchester United er á lægstu laununum í enska hópnum sem er á EM en hann þénar aðeins 1,7 milljón á viku.
Slíkt þykir ekkert sérstakt en Mainoo er 18 ára gamall og er líklegt að hann sexfaldi laun sín í næsta samningi og verði með um 10 milljónir á viku.
Þetta þéna þeir ensku:
Jordan Pickford – £125,000 á viku
Kyle Walker – £175,000 á viku
John Stones – £250,000 á viku
Declan Rice – £240,000 á viku
Kobbie Mainoo – £10,000 á viku
Jude Bellingham – £340,000 á viku
Bukayo Sako – £295,000 á viku
Phil Foden – £225,000 á viku
Harry Kane – £410,000 á viku
Cole Palmer – £75,000 á viku