Svo virðist sem að söngkonan Britney Spears geti í framtíðinni átt betra samband við syni sína tvo. Hún mun hafa rætt við þá símleiðis nýlega og drengirnir, Sean og Jayden sem eru 17 og 18 ára, sagt móður sinni að þeir hafi áhuga á að bæta samskiptin þeirra á milli.
Samkvæmt lögmanni barnsföður Britney, Kevin Federline, gekk símtalið vel og sáu strákarnir að móðir þeirra er á góðum stað andlega. Meirihluta æsku þeirra var Britney sjálfræðissvipt og fór faðir þeirra með fulla forsjá. Eftir að Britney fékk sjálfræðið að nýju þótti sonum hennar óþægilegt hvernig hún kaus að tjá þetta frelsi sitt á orði og á borði. Faðir þeirra greindi svo frá því í september árið 2022 að synirnir hefðu ákveðið að taka pásu frá móður sinni og meðal annars ekki mætt í brúðkaup hennar og fyrirsætunnar Sam Asghari sem fór fram þá um sumarið.
„Það er eins og hún þurfi að setja eitthvað inn á Instagram bara til að fá athygli. Þetta er búið að ganga svona árum saman og það eru góðar líkur á að þetta verði alltaf svona, en ég fyrir mitt vona að hún hætti þessu,“ sagði Jayden í viðtalið árið 2022. Britney brást við viðtalinu með því að birta færslu á Instagram þar sem hún sagðist elska syni sína og þætti leitt að hún væri ekki að uppfylla væntingar þeirra til móðurhlutverksins. Hún sagðist vona að dag einn væru synir hennar tilbúnir að hitta hana og ræða þetta allt saman til þaula.
Nú má reikna með að sú stund fari að renna upp enda drengirnir að verða fullorðnir.