Live Science segir að í rannsókninni komi fram að stjörnurnar geti verið „ódauðlegar“ vegna þess að þær fangi í sífellu hulduefni og eyði því í kjarna sínum.
Vísindamenn notuðu reiknilíkön af þróun stjarna í rannsókn sinni. Þeir komust að því að hulduefnisagnir, sem þyngdaraflssvið þessara stjarna ná, rekist oft saman og tortími hver annarri inni í stjörnunni og breytist þá í venjulegar agnir um leið og þær losa um töluvert mikla orku.
Þessi aukaorka gæti viðhaldið jafnvægi stjarnanna og hugsanlega gert þær ódauðlegar, meira að segja eftir að þær hafa klárað allan þann forða sinn sem veldur kjarnasamruna í þeim.