Ástæðan er að úlfynjan er búin að eignast yrðlinga á hverju ári allt síðan hún varð kynþroska. Hún er nú 11 ára. Meðalævilengd gráúlfa er þrjú til fjögur ár og afar sjaldgæft er að þeir verði 11 ára og hvað þá að þeir eignist afkvæmi á þeim aldri.
Cowboy State Daily skýrir frá þessu og hefur eftir Kira Cassidy, sem starfar við rannsóknir á úlfum í Yellowstone, að líklega sé um met að ræða hvað varðar úlfa í Yellowstone. „Á hverjum degi reikna ég með að hún geti drepist vegna þess hversu gömul hún er. En ég hef hugsað um þetta í nokkur ár en það er engan bilbug að finna á henni,“ sagði hún í samtali við Live Science.
Samkvæmt útreikningum Cassidy þá nær aðeins 1 af hverjum 250 úlfum í Yellowstone 11 ára aldri. Aðeins sex slík dæmi hafa verið skráð í þjóðgarðinum síðan úlfum var sleppt þar á nýjan leik 1995 eftir langa tíma án úlfa.