Mirror segir að fjögurra manna áhöfn þyrlunnar hafi farist þegar þyrlan var skotin niður. Hún var að leita að úkraínskum drónum nærri Anapa við Svartahaf þegar hún var skotin niður með rússnesku Pantsir flugskeyti.
Rússneska varnarmálaráðuneytið hefur ekki viljað staðfesta að rússneskar loftvarnarsveitir hafi skotið þyrluna niður og segir að um vélarbilun hafi verið að ræða.