Í nótt var farþegavél Play, sem var í flugi frá Lissabon í Portúgal til Íslands, millilent á Írlandi. Ástæðan var veikindi farþega um borð.
Að sögn Birgis Olgeirssonar, sérfræðings á samskiptasviði Play, tafðist flugið um innan við klukkustund vegna þessarar uppákomu. Lent var á Shannon-flugvelli á Írlandi, tekið þar eldsneyti og síðan flogið heim til Íslands.
Birgir hefur á þessari stundu ekki upplýsingar um þjóðerni veika farþegans né hvernig honum reiddi af, fyrir utan að honum var komið í læknishendur. Frekari upplýsingar um þetta gætu legið fyrir síðar í dag.