Bandarísk yfirvöld hafa árum saman reynt að fá Assange framseldan frá Bretlandi til Bandaríkjanna vegna leka á gögnum um stríðin í Afganistan og Írak.
Assange yfirgaf Bretland í gærkvöldi og í frétt BBC í morgun kemur fram að flugvél með hann innanborðs hafi lent í Bangkok í morgunsárið. Þar mun vélin taka eldsneyti áður en henni verður flogið áfram til Norður-Maríanaeyja í Vestur-Kyrrahafi en eyjarnar eru bandarískt samveldisríki.
Samkvæmt BBC mun Assange játa að hafa brotið lög um njósnir en ekki þurfa að sitja í fangelsi. Að því loknu mun hann fara til Ástralíu.
Kristinn Hrafnsson, talsmaður Wikileaks, sagði á Facebook-síðu sinni í gærkvöldi að margra ára barátta sé loksins að skila árangri.