Jónsmessunótt er ein fjögurra nátta á Íslandi þar sem undur geta gerst samkvæmt þjóðtrúnni, selir kasta hömum sínum, dýr tala mannamál, náttúrusteinar fljóta upp úr jörðinni og auðveldara verður að finna óskasteina, lífssteina, hulinshjálma, auk þess sem ýmsar náttúrulækningajurtir öðlast aukinn kraft.
En fátt er talið jafn heilsueflandi á Jónsmessunni og morgundöggin, sem öðlast lækningarmátt um nóttina samkvæmt þjóðtrúnni. Því er til siðs að fara út eldsnemma morguns, kasta af sér klæðum og velta sér nakin upp úr dögginni. Þannig getur fólk læknast af meinum og haldið veikindum í skefjum í heilt ár á eftir. Domino’s fagnar þessari séríslensku hefð með því að taka allt af og bjóða upp á Nakta pizzu eins og segir í tilkynningu.
,,Hugmyndin kviknaði þegar því var velt upp hvernig hægt væri að auglýsa grunninn að góðri pizzu. Þetta var í fyrstu bara grín, að bjóða upp á pizzu með engu, svo fólk gæti prófað botninn okkar en eftir því sem við hugsuðum þetta meira þá fannst okkur skemmtilegra að tengja það við þessa nótt og þjóðtrúna,“ segir Ásmundur Atlason, markaðsstjóri Domino’s.
„Þannig að við ákváðum að klæða pizzuna úr og um leið minna á að það er alltaf það sem er undir sem er mikilvægast. Það á við um fólk og pizzur. Álegg er bara smekksatriði en pizzubotninn, það skiptir öllu máli að hann sé alltaf fyrsta flokks. Hann er grunnurinn að góðri pizzu alveg sama hvað fólk ákveður að setja á hana,“ segir Ásmundur.
Nakta pizzan er aðeins í boði í kringum Jónsmessu og eru landsmenn hvattir til að taka hana með sér þegar þeir fara og velta sér upp úr dögginni.