Forstjóri Salling Group, sem er stærsta smásöluverslunarkeðja landsins, sagði í samtali við Danska ríkisútvarpið að strax daginn eftir að Poulsen kynnti ráðleggingarnar hafi ákveðna vörur farið að seljast meira en venjulega. Til dæmis er söluaukningin á niðursuðumat 300%, meðal annars á niðursoðnum kjötréttum á borð við spaghettí í sósu, pylsum og kjötbollum.
80% söluaukning hefur orðið á túnfiski og makríl í dósum og 70% söluaukning hefur orðið á vatni í 2 líra flöskum.
Í leiðbeiningum dönsku almannavarnanna er fólk hvatt til að eiga birgðir til þriggja daga. Þar á meðal þrjá lítra af vatni á mann fyrir hvern sólarhring. Það sama gildir um mat, hann á að duga í þrjá daga. Þetta þarf að vera matur sem þolir að vera ekki í ísskáp eða frysti og helst matur sem ekki þarf að elda.
Fólk er einnig hvatt til að eiga gas til að geta hitað eða eldað mat ef svo ber undir.