Nú er það líklega iPhone sem er ráðandi á farsímamarkaðnum en áður fyrr var það Nokia sem var mest áberandi. Símarnir frá Nokia þóttu vera vel hannaðir, voru með nýja eiginleika og spennandi leiki. Þeir þóttu einnig, og þykja enn, mjög endingargóðir og sterkir og það endurspeglast í verðinu á Nokia 3310 sem selst fyrir allt að 30.000 krónur í dag.
En ef þú ert ein(n) þeirra sem keypti Ericsson T28 á sínum tíma, þá geturðu kannski gert þér pening úr símanum. Margir safnarar telja þessa síma vera al gjörlega einstaka og vilja mjög gjarnan fá einn slíkan í safnið sitt.
Nokia E90, frá 2007, bjó yfir eiginleikum sem svara til þeirra sem snjallsímar dagsins í dag búa yfir. Sérfræðingar og safnarar vilja gjarnan komast yfir síma af þessari tegund og eru sumir reiðubúnir til að greiða allt að 75.000 krónur fyrir eintakið.
Ef þú varst meðal þeirra fyrstu sem fékkst snjallsíma, þá áttu kannski iPhone 2G heima í skúffu. Ef svo er, þá geturðu glaðst yfir því að það er hægt að selja slíka síma fyrir vænan skilding því þeir eru mjög eftirsóttir af söfnurum. Slíkur sími, sem er ekki í mjög góðu ástandi en virkar, selst fyrir um 150.000 krónur en ef þú átt einn slíkan ónotaðan og í innsigluðum umbúðunum, þá horfir málið öðruvísi við. Slík eintök hafa selst fyrir 6 milljónir króna á uppboðum. Reikna má með að verðið hækki í framtíðinni.
Það er því ekkert annað að gera en fara að leita að gömlu farsímunum í skúffum og skápum til að sjá hvort hægt sé að gera sér pening úr þeim.