CBC segir að 19. júní hafi 13 kuldamet verið sett í Alberta. Kaldast var í Hendrickson Creek en þar mældist 2,7 gráðu frost að degi til.
Þennan sama dag voru sett rúmlega 100 hitamet í austurhluta landsins, þar á meðal í Québec og Ontario.
Kanada er mjög stórt land og því er veðrið mjög mismunandi frá einum landshluta til annars en Ken Dosanjh, veðurfræðingur, sagði að samt sem áður sé þetta mjög athyglisvert. „Þetta er mjög svo óeðlilegt veður svona snemma í júní,“ sagði hann.