fbpx
Mánudagur 01.júlí 2024
Fókus

Guðlaugur: „Ég verð að viðurkenna að ég sagði Tom aldrei um hvað lagið væri“

Fókus
Mánudaginn 24. júní 2024 16:29

Samsett mynd: Halli, Pétur og Ásgeir

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Árið 2005 var tónlistarmaðurinn Guðlaugur Hjaltason staddur í Danmörku ásamt vinum sínum Jóni Magnúsi Sigurðssyni (Chernobil) og Þór Sigurðssyni (Deep Jimi and the Zep Creams), þar sem þeir höfðu stofnað hljómsveitina Tundur. Með dönskum trommuleikara fæddi samvinna þeirra skemmtilega eftirminnilegt lag: „Bláberja Tom,“ innblásið af kómískum lélegum afsökunum trommuleikarans fyrir að hafa misst af æfingum.

„Eitt kvöldið sagði hann okkur að sonur hans væri veikur og hann gæti ekki mætt,“ rifjar Guðlaugur upp.

„Við tilfinninga kögglarnir í bandinu sýndum því samúð þar til við komumst að því að sonur hans var 16 ára og var með smá kvef,“ lýsir Guðlaugur með glott á vör

Þessar áframhaldandi afsakanir urðu að brandara innan hljómsveitarinnar. Á einni æfingu þar sem trommuleikarinn lét ekki sjá sig sagði Guðlaugur gamansamur: „Það þarf að berja hann.“ „Já, bláberja hann!“ hrópaði Þór þá og þannig varð lagið „Bláberja Tom“ til.

Sagði honum aldrei um hvað lagið er

Guðlaugur fór heim um kvöldið með lagið fast í huganum og endaði á því að semja lag um trommuleikarann. Hann kom með það aftur til hljómsveitarinnar og saman tóku þeir það upp í hljóðveri T.C Electronic. „Ég verð að viðurkenna að ég sagði Tom aldrei um hvað lagið væri og við elskuðum að hafa þennan kjánalega litla húmor til að hlæja að í hvert skipti sem Tom byrjaði að syngja lagið með okkur,“ segir Guðlaugur.

Nú, nítján árum síðar, er „Bláberja Tom“ loksins að líta dagsins ljós, endurupptaka með nokkrum af bestu tónlistamönnum Íslands. Harald Þorsteinsson, með bestu bassa leikurum landsins og traustur vinur Guðlaugs, bætir sérþekkingu sinni við lagið. Ásgeir Óskarsson, með fremstu trommuleikurum landsins, kemur með hæfileika sína og snilli en Pétur Hjaltested, sem sér um hljómborð og upptökustjórn, fullkomnar sveitina.

Mynd: Guðlaugur Hjaltason – Ljósmyndari: Maggi Gnúsari

Lagið er gefið út af Lýðskrum, sem hefur tekið tónlistarsenuna með stormi árin 2023 og 2024 með lögunum „Dagskrá,“ „Fjandinn laus“ og „Verðbólguvandinn“ sem öll hafa sinn einstaka hljóm og kraftmikinn texta.

Guðlaugur Hjaltason, sem spilaði á gítar, söng og samdi lagið, veltir fyrir sér gleðinni í kringum „Bláberja Tom“: „Enginn slasaðist við gerð þessa lags og enginn trommari var barinn.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Baráttukonan Margrét um glímuna við MS-sjúkdóminn og áfallið sem hjónaskilnaðurinn var – „Þetta var á versta tíma lífs míns“

Baráttukonan Margrét um glímuna við MS-sjúkdóminn og áfallið sem hjónaskilnaðurinn var – „Þetta var á versta tíma lífs míns“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Kynlífsstellingin sem latar konur elska

Kynlífsstellingin sem latar konur elska
Fókus
Fyrir 3 dögum

Vinsælt brjóstatrend snýr aftur – „Undirtúttan“ áberandi í tískuvikunni

Vinsælt brjóstatrend snýr aftur – „Undirtúttan“ áberandi í tískuvikunni
Fókus
Fyrir 3 dögum

Ástrós Rut minnist Bjarka Más á dánardegi hans – „Í huga mér, í hjarta mér, hjá mér að eilífu“

Ástrós Rut minnist Bjarka Más á dánardegi hans – „Í huga mér, í hjarta mér, hjá mér að eilífu“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Nýtt útlit Lisu Rinnu vekur athygli – Líkt við Albert Einstein og eiginmanninn

Nýtt útlit Lisu Rinnu vekur athygli – Líkt við Albert Einstein og eiginmanninn
Fókus
Fyrir 4 dögum

Tvíburasystir Aaron Carter vissi að hann myndi deyja fyrir aldur fram – „Ég held að hann hafi einnig vitað það“

Tvíburasystir Aaron Carter vissi að hann myndi deyja fyrir aldur fram – „Ég held að hann hafi einnig vitað það“