Jay ferðaðist til Tenerife til að vera viðstaddur NRG-tónlistarhátíðina ásamt vinum sínum. Að morgni mánudags fyrir viku sást síðast til hans en þá ætlaði hann að halda fótgangandi til gististaðar síns í Los Christianos en virtist ekki gera sér grein fyrir því að þangað var langur gangur, eða um 10 klukkustundir. Leitarhópar, sporhundar og þyrlur hafa meðal annars leitað að Jay en án árangurs.
Vinkona Jay, Lucy, sem var með honum á Tenerife, sagði í síðustu viku að hana grunaði að Jay hefði verið numinn á brott. Hún var sú síðasta sem heyrði í honum að morgni mánudags en þá var síminn hans að verða rafmagnslaus og hann sagðist vera villtur.
Jay var með Lucy á tónlistarhátíðinni á sunnudagskvöld en hann yfirgaf hátíðina um klukkan fimm að morgni mánudags og fór í bíl með tveimur einstaklingum sem hann kynntist á hátíðinni. Ekki er talið að þeir beri neina ábyrgð á hvarfi hans. Til marks um það birti Jay mynd á Snapchat-síðu sinni snemma á mánudagsmorgun og um tveimur tímum síðar hringdi hann í Lucy og sagðist vera villtur.
Daily Mail birtir í morgun skjáskot úr eftirlitsmyndavél sem tekið var tíu klukkustundum eftir að síðast sást til Jay. Skjáskotið var tekið á eftirlitsmynd í Santiago de Teide um klukkan 18 að kvöldi.
Móðir Jay, Debbie, sagði við Mail Online að maður hefði sett sig í samband við lögreglu og tjáð henni að maður, sem líktist Jay, hefði sést á þessum slóðum síðdegis síðastliðinn mánudag. Þá hafi hann setið á bekk ásamt tveimur mönnum í tötralegum klæðum. Sagði hún lögreglu vera að rannsaka ábendinguna og hverjir mennirnir séu. Sjálf kveðst Debbie, rétt eins og Lucy, vera viss um að Jay sé enn á lífi og að honum hafi verið rænt.
Heimildarmaður tengdur fjölskyldunni segir að þó myndin sé vissulega mjög óskýr bindi fjölskyldan vonir við að hann varpi einhverju ljósi á hvarfið.
Leitin undanfarna daga hefur einkum beinst að gljúfri skammt frá svæðinu sem Jay var síðast á og er ekki útilokað að hann hafi villst af leið og örmagnast í hitanum fjarri mannabyggðum.
Lucy kveðst ekki hafa neina trú á því og telur að eitthvað gruggugt sé í gangi varðandi hvarfið. Segir hún að ef hann hafi ætlað að koma sér sjálfur heim til Los Christianos, þar sem þau dvöldu, hefði hann gengið eftir þjóðveginum og reynt að húkka sér far. Hann hefði ekki farið út í óbyggðir í þeirri von að stytta sér leið.