Financial Times skýrir frá þessu og segir að frá upphafi stríðsins hafi Úkraína fengið serbnesk skotfæri að verðmæti 800 milljóna evra.
Þetta gerist þrátt fyrir að Serbía sé annað tveggja Evrópuríkja sem ekki hafa tekið þátt í refsiaðgerðum Vesturlanda gegn Rússlandi og raunar er samband Serbíu og Rússlands gott.
Aleksandar Vucic, forseti Serbíu, segir ekkert athugavert við að serbnesk skotfæri enda hjá úkraínska hernum og séu notuð gegn rússneskum hermönnum. „Þetta er hluti af endurreisn efnahags okkar og er mikilvægt fyrir okkur. Já, við seljum skotfæri úr landi. Við getum ekki flutt þau til Úkraínu eða Rússlands . . . En við erum með marga samninga við Bandaríkjamenn, Spánverja, Tékka og fleiri. Hvað þeir gera síðan við skotfærin, er þeirra mál,“ sagði forsetinn.