Atli Hrafn Andrason skoraði ótrúlegt mark í gær er HK vann lið Stjörnunnar í Bestu deild karla.
HK vann þennan leik 4-3 en Stjarnan jafnaði metin í 3-3 þegar 89 mínútur voru komnar á klukkuna.
Þremur mínútum síðar tryggði Atli HK sigur með stórkostlegu skoti frá miðjuboganum.
,,Hvað er að gerast!“ öskraði lýsandi leiksins en myndband af markinu var birt á heimasíðu Vísis.
Sjón er sögu ríkari.