Hún sá íslenska konu auglýsa lyfið á samfélagsmiðlum. Lyfið er ósamþykkt og varar Lára fólk við að falla ekki í þessa gryfju. Hún segir að það sé ástæða fyrir því að þessi „töfralausn“ sé ólögleg, meðal annars í öllum Bandaríkjunum, Norðurlöndunum, Bretlandi, Ástralíu og Nýja-Sjálandi.
„Um daginn þegar ég var að skruna á Instagram hnaut ég um auglýsingu þar sem íslensk kona lofaði hástert skjótfengna brúnku sína sem hélst allt árið um kring. Með fylgdi sjálfa af konunni þar sem brúni liturinn var fangaður gegnum ljóssíu. Þú gast sent henni persónleg skilaboð til að kaupa brúnku-nefúða á tíu þúsund krónur, en tekið var fram einn til tveir ljósatímar virkjuðu brúnkuferlið,“ segir Lára.
„Húðnördinn í mér sat ekki á sér og hóf strax að kanna hvort augun væru að nema það sem hann grunaði. Í gegnum tíðina hefur þetta efni poppað reglulega upp í okkar vestræna heimi hvar eftirspurn eftir skótfenginni brúnku er hve mest. Athygli vekur að þessar vörur eru yfirleitt lofaðar og seldar af einstaklingum á samfélagsmiðlum, en einnig á líkamsræktarstöðvum og heilsulindum. Það er nefnilega rík ástæða fyrir því að þessi svokölluðu barbí-brúnkulyf fást ekki á hinum almenna markaði.“
Lára segir að áður en lengra er haldið er vert að spyrja: Hvernig töfrar úði í nef fram brúnan húðlit?
„Melanotan II heitir virka efnið í barbí-brúnkulyfinu. Einnig er til Melanotan I sem er lyf til að meðhöndla sjaldgæfan arfgengan sjúkdóm og er einungis gefið undir læknishöndum. Melanotan II er framleitt í efnaverksmiðju og líkir eftir virkni melanocortin hormóna, en það eru náttúruleg hormón sem taka þátt í ýmissi líkamsstarfsemi, m.a. er varða orkubúskap, ónæmiskerfi, kyngetu og starfsemi hjarta- og æðakerfis.“
Eitt af þessum hormónum sem lyfið líkir eftir er sortfrumuörvandi hormón sem er ábyrgt fyrir framleiðslu melaníns. „Sem gerir húðina brúna. Hormón þetta dugar þó ekki eitt og sér, heldur þurfa útfjólubláir geislar að skína á húðina til að kveikja á brúnkuferlinu,“ segir Lára og bendir á að fara í sólbað eða ljósabekk eykur líkurnar á húðkrabbameini.
„Í eyrum sumra kann Melanotan II að hljóma sem saklaust þar sem það líkir eftir okkar eigin hormóni, en það er ástæða fyrir því að það er ólöglegt í öllum 50 fylkjum Bandaríkjanna, Norðurlöndunum, Bretlandi, Ástralíu og Nýja-Sjálandi, svo dæmi séu nefnd. Vegna víðtækra áhrifa var Melanotan II rannsakað sem mögulegt lyf við getuleysi kvenna og risvandamálum karla, en klínískri þróun hætt árið 2003. Óprófuð og ólöggild barbí-brúnkulyf koma þó reglulega í sölu á internetinu og ósjaldan með sviksamlegum hætti.“
Lára segir að sölumenn lyfsins lofa öllu fögru og greina sjaldnast frá aukaverkunum þess.
„Ójafn húðlitur og aukin blettamyndun er nokkuð algengt. Þá geta aukaverkanir falið í sér bólumyndun, sýkingar, óeðlilegan kinnroða, ógleði, uppköst, lystarleysi, kviðverki og langvarandi sársaukafulla standpínu hjá körlum. Lífshættulegum einkennum hefur verið lýst, svo sem brjóstverkur, andnauð, rákvöðvaleysing, nýrnabilun og heilakvilli með sjóntruflunum, krampa, höfuðverk og breyttri vitsmunagetu. Þá hefur tilfellum sortuæxla verið getið, sem hafa myndast tiltölulega fljótt eftir fyrstu notkun. Engar rannsóknir eru til um áhrif efnisins til lengri tíma.“
Þar að auki er ekkert eftirlit með lyfinu og þá er ómögulegt að vita hvað leynist í því. Hún ráðleggur fólki að nota frekar brúnkukrem ef það vill dekkja húðlitinn. „Auk þess má styðja við fallegan og heilbrigðan húðlit með ákveðinni næringu.“
Pistilinn má nálgast í heild sinni hér auk heimildanna sem Lára vísar í.