Ágústa Valsdóttir móttökuritari hjá Dea Medica og eiginkona Gunnlaugs Helgasonar fjölmiðlamanns og smiðs sem oft er þekktur sem Gulli byggir, hefur sett raðhús þeirra á sölu. Smartland greinir frá.
Húsið er 211 fm endaraðhús á tveimur hæðum byggt árið 1973, þar af bílskúr 22,2 fm.
Hjónin hafa búið í húsinu í meira en tuttugu ár og hafa tekið það í gegn á þeim tíma.
Á neðri hæð er forstofa og gestasalerni og gengið upp nokkrar tröppur í eldhús, borðstofa og stofa í einu rými með útgengi á svalir. Úr forstofu er gengið niður á neðsta pall hússins þar sem eru fjögur svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús.
Innangengt er í bílskúrinn. Fallegur garður tilheyrir húsinu með viðarpalli með skjólveggjum.
Nánari upplýsingar um eignina má finna hér.