Sjónin sem mætti þeim sem komu að Julianne og Lauru látnum var skelfileg. Þær voru bundnar á höndum og fótum og höfðu verið skornar á háls. Þrátt fyrir ítarlega leit að morðingjanum á sínum tíma fannst hann ekki.
Nú telur lögregla sig vera búna að komast að því hver morðinginn var með aðstoð DNA-rannsóknar. Hann verður þó aldrei dæmdur fyrir morðin því hann lést árið 2018.
Hinn grunaði í málinu hét Walter Jackson og var dæmdur raðnauðgari. Hann lést sjötugur að aldri í fangelsi í Cuyahoga-sýslu í Ohio en hann hafði verið dæmdur fyrir nauðganir og mannrán fjórum sinnum áður en hann lést.
Rannsókn málsins hófst að nýju árið 2021 þegar deild innan bandarísku alríkislögreglunnar, FBI, sem skoðar óupplýst sakamál, sendi DNA-snið í rannsókn sem tekið var á vettvangi morðanna árið 1996. Kom það heim og saman við DNA-snið sem fundust í kynferðisglæpunum sem Walter hafði verið dæmdur fyrir.
Stanley Meador, fulltrúi FBI sem fór með rannsókn málsins, segir við bandaríska fjölmiðla að nú sé til skoðunar hvort Jackson tengist öðrum óupplýstum morðmálum.