fbpx
Mánudagur 15.júlí 2024
Fréttir

Kristinn um manninn sem var handtekinn á 17. júní: Hafði misst meðvitund á Austurvelli stuttu áður en enginn sjúkrabíll kom

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 20. júní 2024 12:30

Kristinn Jón gagnrýnir viðbrögðin. Samsett mynd: Reykjavíkurborg/Instagram

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Hér er um veikan einstakling að ræða sem þarf á sérfræðiaðstoð að halda. Hvar er manngæskan og faglegu viðbrögðin sem við borgarar eigum að treysta á frá viðbragðsaðilum í málum sem þessum?“

Þessari spurningu varpar Kristinn Jón Ólafsson, fyrsti varaborgarfulltrúi Pírata, fram í aðsendri grein sem birtist á Vísi í morgun.

Kristinn var – eins og margir aðrir – staddur í miðborg Reykjavíkur á 17. júní með börn sín þegar hann sá mann á róli skammt frá styttunni af Jóni Sigurðssyni á Austurvelli.

„Stundarkorni síðar fellur sami maður kylliflatur á flötina beint fyrir framan mig og börnin. Ég krýp niður á hnén til þess að athuga með lífsmörk. Ungmennin á vellinum bregðast skjótt og faglega við; unglingurinn minn víkur til hliðar í ró með yngra barnið og tveir ungir herramenn hringdu í Neyðarlínuna,“ segir Kristinn og bætir við að þarna hafi hönd hans legið á hjarta ókunnugs manns þar sem hann fnn á tímapunkti hvorki púls né andardrátt eftir yfirliðið.

„Ég kallaði skelkaður: „Er einhver læknir á staðnum?“ Viðbrögðin sem ég uppskar voru takmörkuð, þrátt fyrir fjölda fólks sem voru samankomin á Austurvelli á þjóðhátíðardegi okkar Íslendinga. Tveir karlmenn ganga upp að okkur í grasinu; annar spyr mig hvort ég sé læknir sem ég neita, og hinn talar um sjúklinginn eins og þekkt vandamál. Og báðir halda svo áfram sinni iðju út í daginn,“ segir Kristinn í grein sinni.

Rankaði við sér stuttu síðar

Hann segir að „ósýnilegi maðurinn“ hafi blessunarlega rankað við sér á ný og sýnt honum mikið þakklæti – án orða. „Búinn á líkama og sál. Á sama tíma brast sorgin innra með honum út – og ég grét innra með mér með honum,“ segir hann.

Kristinn segir að tíminn þar sem hann hlúði að manninum sé óljós í minni en hann setur stórt spurningarmerki við að viðbragðsaðilar brugðust ekki kvikar við þegar hringt var í Neyðarlínuna og tilkynnt um að maður hafði misst meðvitund.

„Og þegar hringt var í annað sinnið í 112, þar sem ekkert bar á sjúkrabíl, var spurt af viðbragsaðilum hvort að nafnið á viðkomandi væri ekki X. Hefði verið brugðist skjótar við ef um annan aðila hefði verið að ræða? Fordómarnir leynast nefnilega víða innra með okkur og við þurfum að byrja á því að viðurkenna þá. Einungis þá getur mannúðin orðið ríkjandi.“

Enginn sjúkrabíll kom

Kristinn segir að stutta sagan sé sú að enginn sjúkrabíll kom.

„Eftir dágóðan tíma komu þrír lögreglumenn röltandi og einn þeirra mælti við mig höstuglega og án spurninga: „Við tökum nú yfir“. Mér var ekki vel við að yfirgefa manninn sem ég hafði deilt þessari erfiðu stund með, en börnin biðu á kantinum.

Hann segir að sorgin hafi svo magnast daginn eftir þegar hann las frétt á Vísi um ómanneskjuleg viðbrögð lögreglunnar gagnvart sama manni í Bankastræti um klukkustund eftir að hann missti meðvitund á Austurvelli þann 17. júní. Í fréttinni kom fram að fimm lögreglumenn hefðu handtekið manninn og notað svokallað hrákapoka við aðgerðirnar. Birtist myndband af handtökunni á Instagram.

„Af myndum og myndbrotum af atvikinu að dæma virðast einnig sömu lögreglumennirnir vera að verki sem komu að okkur á Austurvelli og tóku við „aðhlynningunni“ á honum.“

Hvar er manngæskan?

Kristinn segir að margar spurningar vakni, til dæmis hvort manninum hafi verið veitt heilbrigðisaðstoð eftir að hann missti meðvitund.

„Samkvæmt mbl viðtali frá 18. júní við aðstoðaryfirlögregluþjón á höfuðborgarsvæðinu hafði lögreglan gengið fram á manninn. Það er eitthvað sem vantar í söguna hér þar sem bæði lögreglan og Neyðarlínan voru upplýst um veikindi mannsins a.m.k. tæpri klst. fyrir handtökuna – auk þess sem að lögreglan hafði tekið að sér að hlúa að honum á Austurvelli. Hvernig stendur á því að lögreglan beitir veikan mann ofbeldi vitandi að hann hafi fallið í yfirlið og misst meðvitund innan við klst. áður?“

Kristinn segir að þarna hafi verið um veikan einstakling að ræða sem þurfti á sérfræðiaðstoð að halda. Spyr hann hvar manngæskan og faglegu viðbrögðin séu sem borgarar eiga að treysta á frá viðbragðsaðilum í málum sem þessum.

„Verkferlar og ofbeldi sem lögreglan beitir í þessum aðstæðum eru merki um þekkingar- og úrræðaleysi sem þarf að bæta strax með auknum stuðningi við viðbragðsaðila, fyrirbyggjandi aðgerðum og fræðslu sem stuðlar að umburðarlyndi og víðsýni.“

Hefði þetta þurft að gerast?

Kristinn kveðst svo velta fyrir sér hvort að mannúðlegri nálgun á Austurvelli af hálfu viðbragðsaðila hefði mögulega komið í veg fyrir harkalegu viðbrögðin stuttu síðar í Bankastrætinu.

„Valdbeiting á aðeins að vera beitt í ítrustu neyð – viðbrögð sem fela í sér sinnuleysi og ofbeldi leiða okkur í vítahring sem mun einungis skila sér í auknum skaða fyrir okkur öll. Við verðum ótengdari og fátækari sem samfélag.“

Sjálfur kveðst Kristinn vilja búa í samfélagi sem byggir á trausti, samvinnu og náungakærleik. Hann dregur þó ekki fjöður fyir það að lögregla glími við undirfjármögnun og álag sem bæta þarf úr.

„Að lokum vil ég árétta að vangaveltur mínar eiga ekki að snúa beint að viðbragðsaðilum, heldur að þeim ferlum og menningu sem þar virðist ríkja. Ég skora á dómsmálaráðherra að setja í gang stefnumótun og umbreytingu á ferlum innan stofnana viðbragðsaðila þar sem aðaláherslan sé á þverfagleg neyðarteymi og menningarbreytingu þar sem mannúðin er höfð að vopni öllum til heilla.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 10 klukkutímum

Líkfundur á Tenerife í tengslum við leitina að Jay Slater

Líkfundur á Tenerife í tengslum við leitina að Jay Slater
Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Dómur kveðinn upp yfir Kourani – Hefur brotið af sér og ofsótt fólk árum saman

Dómur kveðinn upp yfir Kourani – Hefur brotið af sér og ofsótt fólk árum saman
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Guðrún ætlar ekki að flytja inn í Biskupsgarð – Agnes flytur út og glæsihýsið verður selt

Guðrún ætlar ekki að flytja inn í Biskupsgarð – Agnes flytur út og glæsihýsið verður selt
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Drama í ófullgerðu fjöleignarhúsi – Ósátt við nýju veggina og neituðu að færa bílana

Drama í ófullgerðu fjöleignarhúsi – Ósátt við nýju veggina og neituðu að færa bílana
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Fleiri Loga töskur dúkka upp – „Hvað er í gangi?“

Fleiri Loga töskur dúkka upp – „Hvað er í gangi?“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Dópaði og drukkni skipstjórinn hlaut tólf mánaða skilorðsbundinn dóm

Dópaði og drukkni skipstjórinn hlaut tólf mánaða skilorðsbundinn dóm