Læknirinn sem um ræðir heitir Benjamin Brown og er 41 árs en eiginkona hans, Hillary Brown, var 33 ára þegar hún lést í nóvember síðastliðnum af völdum hjartastopps.
CBS segir að Benjamin hafi sýnt af sér vítaverða vanrækslu þegar eiginkona hans fór í hjartastopp í aðgerðinni. Hann hafi til dæmis ekki hringt strax eftir aðstoð og ekki hafið endurlífgunartilraunir fyrr en of seint.
Hefur Benjamin af þeim sökum verið ákærður fyrir manndráp af annarri gráðu og gæti átt yfir höfði sér að lágmarki 20 ára fangelsi. Faðir Hillary, Marty Ellington, var ómyrkur í máli eftir dauða dóttur sinnar og sagði að „egó og sjálfselska“ tengdasonarins hafi átt þátt í því hvernig fór.
Benjamin var að gera nokkrar aðgerðir á eiginkonu sinni þegar hún lést, þar á meðal fitusog á handleggjum og andlitslyftingu.
Eftir að Hillary fór í hjartastopp var Benjamin spurður af aðstoðarkonu sinni hvort hún ætti að hringja eftir aðstoð en hann svarað neitandi eða sagt henni að bíða með það. Aðstoðarkonan, sem hafði ekki starfað lengi fyrir Benjamin, hlýddi skipunum hans. Hillary var haldið sofandi í öndunarvél eftir aðgerðina en lést nokkrum dögum síðar.