Live Science segir að bóluefnið hafi vakið upp ónæmisviðbrögð gegn bæði inflúensu og SARS-CoV-2 en það er veiran sem veldur COVID-19. Um klíníska rannsókn er að ræða og tekur fólk 50 ára og eldra þátt í henni.
Nýja bóluefnið var borið saman við nokkur önnur bóluefni sem veita vernd annað hvort gegn COVID-19 eða inflúensu. Í þessum samanburði kom fram að blandan olli „mun meiri ónæmisviðbrögðum“ gegn þremur undirtegundum inflúensu og kórónuveirunni.
Ekki hefur verið farið yfir niðurstöður rannsóknarinnar af vísindamönnum sem ekki starfa hjá Moderna. Fyrirtækið hyggst kynna rannsóknina og gögnin á bak við hana á læknaráðstefnu á næstunni og einnig verður rannsóknin birt í vísindariti.
Talsmenn Moderna segja að fyrirtækið stefni á að bóluefnið verið tilbúið til notkunar fyrir haustið 2025.
Pfizer-BioNTech og Novavax vinna einnig að þróun blandaðra bóluefna af þessu tagi en Moderna var fyrst til að birta upplýsingar um klínísku rannsóknina sína.