Saksóknarar kynntu hluta niðurstöðu mats geðlækna á Philip, sem er 33 ára, og er hún í stuttu máli að hann sé mjög afbrigðilegur þegar kemur að kynlífi og hættulegur en ekki geðveikur. Hann fær útrás fyrir kynferðislegar langanir sínar með því að ráðast á stúlkur. „Miklar líkur“ eru á að hann muni fremja svipuð afbrot ef hann fær að ganga laus á nýjan leik.
Annar saksóknari málsins las upp brot úr tveimur skáldsögum sem Philip skrifað eftir að hann var úrskurðaður í gæsluvarðhald. Samkvæmt fréttum danskra fjölmiðla þá var viðstöddum illa brugðið eftir lesturinn, meira að segja þaulvönum blaðamönnum sem hafa upplifað ýmislegt í réttarsölum landsins.
Skáldsögurnar fundust í klefa Philip. Samtals um 70 A4 blöð þar sem hann lýsir fantasíum sínum um að ræna ungum, ókunnugum stúlkum og beita þær grófu kynferðislegu ofbeldi. Er um mjög nákvæmar lýsingar að ræða að sögn og þeim fylgja teikningar eftir hann. Sátu viðstaddir hljóðir og var augsýnilega brugðið.
Saksóknari sagði að sögurnar séu skrifaðar í fyrstu persónu og lýsi árásum, frelsissviptingu og grófu kynferðisofbeldi gagnvart ungum stúlkum.
Saksóknarinn sagði að um skáldsögur sé að ræða en hins vegar sé ákveðin líkindi með þeim og því sem Philip er ákærður fyrir. Um nákvæmar lýsingar er að ræða á árásum og margra klukkustunda kynferðisofbeldi og nauðgunum á stúlkum. Einnig lýsir Philip umfjöllun um „mannránsmálin“ og hvernig aðalpersónan í sögunum naut þess að fylgjast með fréttaflutningi af þeim.
Dauðaþögn var í dómsalnum þegar upplestrinum lauk.
Philip neitar sök varðandi flest ákæruatriðin en játar að hafa svipt 13 ára stúlkuna frelsi og beitt hana kynferðisofbeldi en ekki að hafa nauðgað henni.
Í tölvu hans fann lögreglan 736.000 ljósmyndir og eru þær flestar af kynferðislegum toga. Þær sýna allt frá kynferðisofbeldi gegn börnum til óhugnanlegra aftöku-, ofbeldis- og pyntingamynda. Myndunum var raðað eftir innihaldi í möppur sem hétu til dæmis: drukknun, dauðaklám og „nekro“ en lík koma við sögu í slíku myndefni.