Kobbie Mainoo, leikmaður Manchester United, segist vera óendanlega þakklátur stjóra liðsins, Erik ten Hag.
Ten Hag gaf Mainoo, þá 18 ára gömlum, traustið í treyju United á síðustu leiktíð og var miðjumaðurinn svo orðinn lykilhlekkur í liðinu. Það skilaði sér í sæti í enska landsliðshópnum á EM sem nú stendur yfir í Þýskalandi.
„Ég er svo þakklátur Erik ten Hag. Ég get ekki þakkað honum nóg,“ segir Mainoo.
Framtíð Ten Hag var lengi í óvissu en á dögunum varð ljóst að hann verður áfram. Mainoo er afar sáttur með það.
„Hann hefur þegar unnið tvo titla og vonandi eru fleiri á leiðinni. Við getum verið rólegir núna þegar við vitum hver verður stjórinn á næsti leiktíð.“