Justin var ákærður og síðar dæmdur fyrir að hafa valdið dauða sonar síns, Cooper Harris, þann 18. júní 2014. Justin sagðist hafa gleymt að skutla syni sínum í dagvistun áður en hann hélt til vinnu. Skildi hann drenginn eftir í bílnum í sjö klukkustundir og lést hann af völdum hita og ofþornunar í sumarhitanum í Atlanta.
Justin neitaði sök í málinu en árið 2016 var hann dæmdur í lífstíðarfangelsi án möguleika á reynslulausn. Sá dómur var svo ógiltur árið 2022 eftir að dómari komst að þeirri niðurstöðu að hann hefði ekki fengið sanngjörn réttarhöld. Í kjölfarið var svo tilkynnt að ekki yrði réttað yfir honum aftur.
Justin var þó áfram á bak við lás og slá þar sem hann sat af sér dóm fyrir kynferðisbrot gegn ólögráða stúlku.
Justin neitaði sem fyrr segir sök í málinu en saksóknurum tókst engu að síður að sannfæra kviðdómendur um sekt hans. Ýmislegt í hegðun hans benti til þess að hann væri ekki allur þar sem hann var séður og hafði hann til dæmis haldið framhjá eiginkonu sinni ítrekað áður en Cooper lést og sent konum myndir af getnaðarlimi sínum.
Lögmenn hans héldu því fram að meðferð saksóknara á þessum upplýsingum meðan málið var fyrir dómi hafi gert það að verkum að engar líkur væru á að hann fengi sanngjörn réttarhöld. Undir það tók dómari sem fyrr segir og var dómurinn því ógiltur.
Justin var leystur úr haldi á sunnudag, á sjálfan feðradaginn 16. júní.