Arsenal er víst búið að finna arftaka miðjumannsins Thomas Partey sem er að kveðja London í sumar.
Partey er að öllum líkindum á förum frá Arsenal en hann gekk í raðir félagsins frá Atletico Madrid 2020.
Meiðsli hafa sett strik í reikning leikmannsins síðustu mánuði og í raun ár en hann ku vera á leið til Sádi Arabíu.
Liverpool Echo segir að Amadou Onana sé númer eitt á óskalista Arsenal í sumarglugganum og á hann að taka við af Partey.
Onana hefur staðið sig virkilega vel hjá Everton en Arsenal er þó einnig að skoða aðra leikmenn ef hann reynist of dýr í þessum glugga.