Lionel Messi minnti marga á það að hann er alls ekki dauður úr öllum æðum eftir leik Argentínu og Gvatemala í gær.
Messi er orðinn 36 ára gamall en hann fagnar 37 ára afmæli sínu þann 24. júní.
Messi er af mörgum talinn einn besti ef ekki besti leikmaður sögunnar en hann spilar í dag með Inter Miami í Bandaríkjunum.
Hann lék með Argentínu í 4-1 sigri gegn Gvatemala og skoraði tvö mörk og lagði upp eitt í öruggum sigri.
Messi hefur nú skorað 108 mörk fyrir Argentínu í 182 leikjum og verður til taks á Copa America sem hefst bráðlega.