Ísak Bergmann Jóhannsson hefur skrifað undir endanlegan samning við lið Dusseldorf í Þýskalandi.
Þetta staðfesti félagið í morgun en Ísak spilaði með Dusseldorf á lánssamningi í vetur.
Um er að ræða 21 árs gamlan íslenskan landsliðsmann sem var á mála hjá FC Kaupmannahöfn í Danmörku.
Ísak spilaði með FCK frá árinu 2021 en hann var fyrir það hjá Norrkoping og áður ÍA hér heima.
Dusseldorf hefur staðfest endanlega komu Ísaks sem mun spila í þýsku B deildinni næsta vetur.
🔴⚪️🇮🇸 Ísak Jóhannesson stays at Fortuna, here we go!
Official! ✅
Confirmed! ✅
Done Deal! ✅👉 https://t.co/JdASBTxxf6#f95 | 🔴⚪️ | #ÍsakBleibt pic.twitter.com/7CKQGyk4dG
— Fortuna Düsseldorf (@f95) June 15, 2024