Jose Mourinho nýr þjálfari Fenerbache ætlar sér að styrkja liðið í sumar og nú er komið nafn á blað, það er Pierre-Emile Hojbjerg miðjumaður Tottenham.
Hojbjerg var í miklu uppáhaldi hjá Mourinho þegar þeir unnu saman hjá Tottenham.
Hojbjerg er 28 ára gamall danskur landsliðsmaður og er hann sagður hafa áhuga á því að vinna aftur með Mourinho.
Hojbjerg lék áður með Southampton en hann hefur átt góð ár hjá Tottenham en gæti verið á förum.
Mourinho var rekinn frá Roma á síðustu leiktíð en hefur fengið stórt tækifæri hjá Fenerbache sem er einn af risunum í Tyrklandi.