Í gærmorgun fannst Callie Brunett látin á heimili sínu í bænum Loranger, sem er skammt frá borginni Baton Rouge í Louisina. Tvær dætur hennar, 6 og 4 ára, voru horfnar og bentu ummerki til þess að þeim hefði verið rænt.
Var það ættingi mæðgnanna sem hafði samband við lögreglu þar sem hann hafði ekki heyrt í þeim síðan á þriðjudag.
Það var svo seinna í gærdag að dæturnar fundust í skóglendi í Mississippi og var sú yngri látin. Eldri stúlkan fannst heil á húfi í bifreið sem Daniel er grunaður um að hafa stolið.
„Hugur okkar er hjá öllum þeim sem eiga um sárt að binda. Þetta eru ólýsanlegir glæpir,“ segir Daniel Edwards, lögreglustjóri á svæðinu, sem bætti svo um betur og kallaði Callihan heigul.