Norska ríkisútvarpið segir að bæjarbúar hafi orðið ásáttir um að rista kvið slöngunnar upp. Inni í henni fundu þeir konuna sem var látin. Slangan hafði gleypt hana í heilu lagi og var líkið í fötunum.
Það er sjaldgæft að kyrkislöngur gleypi fólk í einum bita en á síðustu árum hefur slíkt gerst nokkrum sinnum í Indónesíu.