fbpx
Þriðjudagur 16.júlí 2024
Fréttir

Sjóklæðagerðin sýkn af kröfu Söndru

Ragna Gestsdóttir
Miðvikudaginn 12. júní 2024 17:30

Verslun Sjóklæðagerðin hf. - 66°NORÐUR í Smáralind. Myndin tengist fréttinni ekki beint.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kona að nafni Sandra stefndi Sjóklæðagerðinni vegna vangoldinna launa að fjárhæð 352.457 kr. Taldi konan ágreining aðila snúast annars vegar um vangoldin laun og hins vegar um hvort unnt sé að segja upp ráðningarsamningi með þeim hætti að slit hans geti verið bæði tímabundin með þeim réttaráhrifum sem lög kveða á um og með kjarasamningsbundnum uppsagnarfresti.

Aðilar skrifuðu undir tímabundinn ráðningarsamning  22. mars 2022. Samkvæmt samningnum var konan ráðin tímabundið frá 24. febrúar 2022 til 31. ágúst 2022. Var um hlutastarf að  ræða  og  átti  samningnum  að  ljúka  án  uppsagnar.  Þann 13. maí 2022 var konunni sagt upp störfum með bréfi þar sem fram kom að uppsögnin væri með einnar viku fyrirvara. Síðasti starfsdagurinn var því 20. maí 2022.

VR sendi fyrirtækinu bréf þar sem uppsögninni var mótmælt og Sjóklæðagerðin krafin um vangreidd gjöld út samningstímann, samtals 1.066.622 krónur. Samtök atvinnulífsins svöruðu kröfunni þann 1. júlí 2022 og staðfestu vangreidd laun að fjárhæð 10.897 kr. vegna mismunar á launataxta, að öðru leyti var kröfunni hafnað. Sjóklæðagerðin greiddi þá upphæð ásamt vöxtum 12. desember 2023.

Taldi ákvæði ráðningarsamningsins óskýr og fyrirtækið í yfirburðastöðu

Í dómi Héraðsdóms Reykjaness er það rakið að konan hafi verið námsmaður sem var að leita að tímabundnu starfi til loka ágúst er hún færi aftur í skólann þá um haustið. Taldi konan að samningur sem feli í sér endi án uppsagnar og sé einnig með heimild til uppsagnar sé óskýr enda lýstur saman tveimur ákvæðum um lok samnings sem fari ekki saman og skapi réttaróvissu gagnvart konunni.

Hún taldi fyrirtækið einnig í yfirburðastöðu gagnvart sér og allan vafa hvað samninginn varðaði ætti að skýra fyrirtækinu í óhag. Konan gerði því kröfu um laun skv. tímabundnum samningi frá uppsögn hans þann 13. maí til loka júní er hún hóf störf hjá nýjum vinnuveitanda.

Fyrirtækið taldi sig ekki skulda konunni laun, henni hafi verið sagt upp á lögmætan hátt með samningsbundnum  uppsagnarfresti  skv.  ákvæðum  ráðningarsamnings  aðila,  sem byggi  á  umsömdum  uppsagnarákvæðum  kjarasamnings  SA  og  VR. Fyrirtækið hafi aldrei lofað konunni óuppsegjanlegri tímabundinni ráðningu. Tímabundin ráðning  til  starfa  fram  á  haust  hafi  verið  með  skýrum  fyrirvara  um  gagnkvæman uppsagnarfrest beggja aðila á  því tímabili. 

Dómari sagði konuna 25 ára og hafnaði yfirburðastöðu

Dómari sagði að í ráðningarsamningi aðila kemur „skýrt  fram  að  ráðningarsamningurinn sé uppsegjanlegur með þeim fyrirvara sem kjarasamningur kveði á um. Ákvæði  þetta  er  jafn  skýrt  og  önnur  ákvæði  samningsins,  s.s.  um  neysluhlé, lífeyrissjóð,  trúnað  og  tilkynningar  um  veikindi.  Ósannað  er  að  stefnanda  hafi  ekki verið kynnt ákvæði samningsins. Stefnandi var tæplega 25 ára þegar hún undirritaði samninginn  og  er  hafnað  þeirri  málsástæðu  hennar  að  stefndi  hafi  verið  með yfirburðastöðu gagnvart henni við gerð samningsins.“

Dómarinn benti jafnframt á að ef ekki væri heimilt að segja tímabundnum samningum upp, að  lögbundnum skilyrðum  uppfylltum,  „gæti  það  skaðað  launþegann,  ef  forsendur bresta  fyrir  vinnuframlagi  hans  og  fyrir  atvinnurekandann  geti  hann  af  einhverjum ástæðum  ekki  uppfyllt  skyldur  sínar.  Væru  þeir  launþegar  sem  hefðu  tímabundna ráðningarsamninga  þá  jafnvel  betur  settir  en  almennir  launþegar  með  ótímabundna ráðningarsamninga.“

Taldi dómari því að fyrirtækinu hefði verið heimilt að segja konunni upp störfum enda fyrirvari um það í ráðningarsamningi hennar. Var Sjóklæðagerðin því sýknuð af kröfu konunnar, sem gert var að greiða fyrirtækinu 500.000 kr. í málskostnað.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Dómarinn rifjaði upp langan brotaferil Kourani – Hefur aldrei stundað vinnu á Íslandi

Dómarinn rifjaði upp langan brotaferil Kourani – Hefur aldrei stundað vinnu á Íslandi
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Auglýsingin fræga á Laugaveginum að hverfa – „Hræðilegt það er verið að byrja að mála yfir þetta“

Auglýsingin fræga á Laugaveginum að hverfa – „Hræðilegt það er verið að byrja að mála yfir þetta“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

„Það er siðferðislega óásættanlegt að þessu tjóni verði eingöngu velt yfir á íbúa í Vestmannaeyjum “

„Það er siðferðislega óásættanlegt að þessu tjóni verði eingöngu velt yfir á íbúa í Vestmannaeyjum “
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Íslendingur dæmdur í þriggja mánaða fangelsi í Danmörku fyrir að kýla unnustu sína margsinnis á bílastæði

Íslendingur dæmdur í þriggja mánaða fangelsi í Danmörku fyrir að kýla unnustu sína margsinnis á bílastæði