Harry Bretaprins er nú sagður í leit að varanlegu heimili í Bretlandi, einfaldlega svo að vinir hans sem ekki eru sáttir við eiginkonu hans Meghan Markle geti heimsótt hann.
Rithöfundurinn Tom Quinn sem skrifað hefur mikið um konungsfjölskylduna sagði við Mirror Sunday að Harry, sem lét af konunglegu starfi sínu árið 2020 og býr nú í Bandaríkjunum, „sakni sumra þátta í gamla lífi sínu“ í London.
„Óhjákvæmilega er hveitibrauðsdögunum í Bandaríkjunum þar sem allt er nýtt og spennandi að ljúka og Harry horfir til fortíðar með rósrauðum gleraugum,“ sagði Quinn. Hann segir Harry sakna hers síns og háskólavina, sem munu hafa ekki heimsótt hann í Kaliforníu vegna þess að „þeir þola ekki Meghan,“ sem Harry giftist árið 2018.
„Harry er staðráðinn í að finna sitt eigið varanlega heimili í Bretlandi, sem er að hluta til ástæðan fyrir því að hann heldur áfram málaferlum sínum til að fá breska skattgreiðendur til að borga fyrir öryggisgæslu sína.“
Hjónin hafa ekki átt heimili í Bretlandi síðan faðir hans, Karl Bretakonungur, rak þau úr Frogmore Cottage snemma á síðasta ári. Húsið var gjöf til þeirra frá Elísabetu Bretadrottningu og dvöldu þau þar þegar þau heimsóttu Bretland. Eftir andlát drottningar fór Karl konungur með stjórn og gerði þeim að rýma húsið degi eftir að ævisaga Harry, Spare, kom út. Í júní fyrir var greint frá því opinberlega að hjónin væru flutt út úr Frogmore Cottage sem er staðsett á Windsor-eigninni.
Hjónin og börnin þeirra tvö, Archie, fimm ára og Lilibet, þriggja ára, eru þó engir þurfalingar og búa í glæsilegu 14 milljóna dala heimili í Montecito í Kaliforníu. Á heimilinu eru níu svefnherbergi og 16 baðherbergi ásamt sundlaug, tennisvelli og tveggja herbergja gistiheimili.