Leiðangurinn hófst um klukkan 19.30 þegar hann fór inn í áfengisverslun í Liverpool og skaut á afgreiðsluborðið. Þaðan lá leið hans á bar í Norris Green hverfi borgarinnar. Þar fékk hann sér drykk, ræddi við viðskiptavini og sýndi tveimur þeirra, karlmönnum, AK-47 árásarrifill, sem hann geymdi í bíl sínum.
Eftir að hafa stoppað á barnum, lá leið Garrett, sem er 49 ára, í nærliggjandi kvikmyndahús en þar hafði hann starfað sem öryggisvörður árum saman, eða allt þar til honum var sagt upp störfum vegna þess að hann mætti ölvaður í vinnuna.
Hann beindi byssunni að starfsmanni kvikmyndahússins en þá kom öryggisvörður og fylgdi honum út. Þegar út var komið skaut Garrett nokkrum skotum úr byssunni að sögn Sky News.
Vopnaðir lögreglumenn voru sendir að kvikmyndahúsinu en Garrett var farinn þaðan þegar þá bar að garði.
Garrett, sem hafði drukkið eina og hálfa flösku af rommi þennan dag, ók næst heim til unnustu sinnar þar sem hann hleypti fleiri skotum af. Því næst faldi hann byssuna undir dýnu í húsinu.
Hann var handtekinn nokkrum klukkustundum síðar heima hjá móður sinni, þegar vopnaðir lögreglumenn réðust til inngöngu í húsið. Þeir þurftu að beita rafbyssu á hann til að yfirbuga hann.
Sem betur fer meiddist enginn þetta kvöld en Garrett hleypti samtals 17 skotum af úr byssunni.
Hann byggði vörn sína fyrir dómi á að þegar hann var barn að aldri hefði hann orðið vitni að því þegar ekið var á bróður hans, sem lést við ákeyrsluna. Þess utan hafi hann orðið vitni að morði þegar hann var 9 eða 10 ára. Þessi áföll hafi haft mikil áhrif á hann síðar á lífsleiðinni.