Benjamin Sesko framherji RB Leipzig hefur ákveðið að hafna tilboðum frá bæði Manchester United og Arsenal.
Bæði félögin höfðu áhuga á að kaupa framherjann frá Slóveníu í sumar.
Félögin vissu af klásúlu í samningi Sesko við Leipzig en hann ákvað að framlengja.
Sesko fær verulega launahækkun hjá Leipzig en sett verður ný klásúla í samningi hans.
Því er talið líklegt að Sesko taki eitt ár í viðbót með Leipzig og fari svo næsta sumar ef áhugavert tilboð kemur.
🚨🇸🇮 EXCLUSIVE: Benjamin Šeško has decided to STAY at RB Leipzig and sign new contract on improved terms!
Decision made for talented striker, similar to what Haaland decided back in the days at BVB.
❗️ Šeško will stay at Leipzig with a new gentlemen agreement for future exit. pic.twitter.com/tJcR0KdfYs
— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) June 11, 2024