Bergrún Íris Sævarsdóttir rithöfundur og teiknaði hefur sett íbúð sína í norðurbæ Hafnarfjarðar á sölu.
Íbúðin er 99 fm efri hæð í húsi sem byggt var árið 1946. Frábært útsýni er út á sjó úr stofu og af svölum.
Íbúðin skiptist í forstofu, eldhús og stofu í einu rými með útgengi á svalir, þrjú svefnherbergi og baðherbergi. Yfir allri eigninni er mannhæðarhátt háaloft sem nýtist í dag sem geymslurými. Samliggjandi íbúð hefur látið gera kvist og nýtir rýmið sem tvö stór herbergi.
„Eftir 10 dásamleg ár við hafið er gullmolinn minn kominn á sölu! Ef þig dreymir um fallega íbúð á frábærum stað með mögnuðu útsýni þá er Herjólfsgata 12 eitthvað fyrir þig!“ segir Bergrún Íris á Facebook.
Nánari upplýsingar um eignina má finna hér.