Það eru allar líkur á því að Joao Palhinha sé nú að skrifa undir samning við Bayern Munchen í Þýskalandi.
Þetta fullyrðir Fabrizio Romano en Palhinha kemur til félagsins frá Fulham í ensku úrvalsdeildinni.
Bayern hefur tvisvar áður reynt að fá Palhinha en Fulham harðneitaði að selja síðasta sumar og í janúar.
Portúgalinn fær hins vegar leyfi frá félaginu að þessu sinni og er hann í miklum metum hjá Vincent Kompany, stjóra Bayern.
Kompany tók við Bayern á dögunum og telur að miðjumaðurinn muni styrkja byrjunarlið sitt fyrir næsta tímabil.