Á fimmtudaginn dæmdi dómstóll í Holbæk í Danmörku 46 ára karlmann í tveggja ára fangelsi fyrir að hafa nauðgað konunni og var upptakan meðal þeirra sönnunargagna sem lögð voru fyrir dóminn.
Saksóknaraembættið á Mið- og Vestur-Sjálandi skýrði frá þessu í færslu á samfélagsmiðlinum X.
Fram kemur að maðurinn hafi tekið sér umhugsunarfrest til að ákveða hvort hann muni áfrýja dómnum. Hann var úrskurðaður í gæsluvarðhald strax eftir að dómurinn var kveðinn upp.