Íslenska karlalandsliðið heimsótti það enska í vináttulandsleik á Wembley í kvöld og vann stórglæsilegan sigur, þvert á það sem allir héldu.
Strákarnir okkar spiluðu fyrri hálfleik frábærlega og gáfu fá færi á sér. Á 12. mínútu kom Jón Dagur Þorsteinsson íslenska liðinu yfir eftir stórgóða sókn. Lék hann á John Stones og renndi boltanum framhjá Aaron Ramsdale í markinu. Staðan í hálfleik 0-1.
Seinni hálfleikur var ekki síðri hjá Íslandi, sem hefði hreinlega getað skorað fleiri mörk. Áfram gekk enska liðinu illa að ógna og hafði Hákon Rafn Valdimarsson í marki Íslands fremur lítið að gera.
Englandi tókst ekki að finna jöfnunarmark og meira var ekki skorað. Lokatölur 0-1, glæsilegur sigur Íslands á Englandi staðreynd. Sannkölluð liðsframmistaða.
Enska liðið ætlar sér stóra hluti á EM í Þýskalandi í sumar og því ljóst að úrslit kvöldsins eru reiðarslag. Þess má geta að það var baulað hressilega á enska liðið í leikslok í kvöld.
Hér að neðan má sjá hvað Íslendingar höfðu að segja um leikinn á X.
Hákon bestur á vellinum, Bjarki frábær og þessir 3 😍😍 #skaginn pic.twitter.com/8fa2dqQEa9
— Andri Júlíusson (@andrijull) June 7, 2024
Stórt hrós á íslenska landsliðið. Heilt yfir sanngjarn sigur á Wembley. Frábær liðsheild, vinnusemi, agi og skipulag upp á 10. Margir með súper frammistöðu eins og Jón Dagur, Hákon markvörður, miðverðirnir Sverrir og Daníel og Bjarki Steinn stimplaði sig inn með glans. 😃😃😃⚽️
— Guðmundur Hilmarsson (@GummiHilmars) June 7, 2024
Norska 🗻🐐#Takk
— Kristján Óli Sigurðsson (@kristjanoli) June 7, 2024
Stórkostleg liðsframmistaða og gaman að sjá Íslenska liðið spila á sínum styrkleikum.
Því meira sem maður sér af Hákoni Arnari, því meira heillar hann mann, þakið er hátt. Sama á við um Hákon Rafn markmann. 🇮🇸 pic.twitter.com/h4lUXLY8RD
— Jóhann Már Helgason (@Joimar) June 7, 2024
Heyrðu. Við erum bara með enska í köðlunum
— Garðar Ingi Leifsson (@gardarleifs) June 7, 2024
Heyrðu Ísland er að smóka þessa Englendingagrenjuskoðudekurrófur👏👏👏👏👏
— Björn Teitsson (@bjornteits) June 7, 2024
Sama hvernig þessi leikur endar þá finnst mér með ólíkindum að einhverjir haldi að Åge sé ekki rétti maðurinn til stjórna þessu liði.
— Gummi Ben 🎙️ (@GummiBen) June 7, 2024
Getur næsti landsliðshópur plís valið að hafa eiginnöfnin á treyjunum?
— Karl Sigurðsson (@kallisig) June 7, 2024
Hákon Arnar jesus minn maður🔥
— Guðlaugur Valgeirsson (@GulliValgeirs) June 7, 2024
Þetta er of easy … englendingar þurfa 1stk Haraldsson og 1stk Þorsteinsson til að taka þátt í þessu móti.
— Igor Bjarni Kostic (@IgorBjarni11) June 7, 2024
Hákon Arnar Haraldsson. #ENGISL #ENGICE pic.twitter.com/pFvDNL6a3q
— Hörður (@horduragustsson) June 7, 2024