Konurnar störfuðu allar í umræddri byggingu sem er við Moore Street í suðvesturhluta borgarinnar.
Konurnar greindust allar með skjaldkirtilskrabbamein og sú sjötta greindist með góðkynja æxli í skjaldkirtli. Þrjár þeirra kvenna sem greindust með meinið unnu í sama rýminu, örfáum metrum frá hver annarri. Allar unnu konurnar á 5. og 6. hæð og hefur 6. hæðinni verið lokað í öryggisskyni.
Skjaldkirtilskrabbamein eru fremur sjaldgæf en þó algengari í konum en körlum. Talið er að um þrjú prósent allra krabbameina sem greinast hér á landi á hverju ári séu skjaldkirtilskrabbamein, samkvæmt grein í Læknablaðinu árið 2011. Í Bandaríkjunum getur ein af hverjum 55 konum vænst þess að fá skjaldkirtilskrabbamein á lífsleiðinni.
Í fréttum ástralskra fjölmiðla kemur fram að skoðað verði hvort eitthvað í umhverfinu, skrifstofubyggingunni sem slíkri, sé að valda þessari óvenjulega háu tíðni krabbameina hjá starfsfólki.
Á vef Krabbameinsfélags Íslands kemur fram að áhættuþættir skjaldkirtilskrabbameins séu ekki vel þekktir og þannig sé ekki vitað hvers vegna konur fá oftar bæði krabbamein og góðkynja sjúkdóma í skjaldkirtilinn en karlmenn. Þó sé vitað að jónandi geislun og erfðir geti haft áhrif á tíðni sjúkdómsins.
Jenny Havilah, ein þeirra kvenna sem greindust fyrir skemmstu, segir við 9News að hún hafi áhyggjur af samstarfsfólki sínu. „Þetta er óhugnanlegt. Ég hef áhyggjur af fólkinu sem deilir sama vinnustað og ég, ekki bara fólkinu sem er á 6. hæð heldur í öllu húsinu,“ segir hún.