Bild skýrir frá þessu og segir að maðurinn hafi sjálfur hringt í lögregluna og skýrt grátandi frá ódæðisverkinu.
Lögreglan fór strax á vettvang og fann þrjú lík. Maðurinn var handtekinn og er hann í í haldi.
Bild segir að hann sé menntaður sjúkraþjálfari. Hann bjó með 59 ára gamalli móður sinni og afa sínum og ömmu sem voru 84 og 85 ára.
Nágrannar segja hann vera hálfgerðan einfara.
Faðir hans, sem er frá fyrrum Júgóslavíu, hefur ekki sést í bænum árum saman.
Móðirin er sögð hafa lifað í ótta um að faðirinn myndi koma dag einn og hafa soninn á brott með sér. Hún verndaði hann því mikið og fékk hann ekki að sækja samkomur af neinu tagi.
Ekki liggur fyrir af hverju hann myrti fjölskyldu sína en talsmaður lögreglunnar sagði að hún væri engu nær um ástæðuna eftir fyrstu yfirheyrslurnar yfir manninum.