fbpx
Föstudagur 26.júlí 2024
Fókus

Vinkonurnar segja hana haga sér allt öðruvísi þegar hún er ekki með Kanye West

Fókus
Miðvikudaginn 5. júní 2024 09:29

Skjáskot/Instagram/X

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Vinkonur ástralska áhrifavaldsins Biöncu Censori, sem er hvað þekktust fyrir að vera í sambandi með rapparanum Kanye West, segja mikinn mun á hegðun hennar þegar hún er með fjölskyldu sinni miðað við þegar hún er með eiginmanninum.

Þær trúa því að Kanye líti á hana sem einhvers konar „dramatíska uppsetningu á listverki.“ Þær ræddu um þetta við Page Six og sögðu einnig að Bianca hagi sér allt öðruvísi þegar hún er ekki með rapparanum.

Bianca, 29 ára, virtist „sjálfri sér lík“ þegar hún heimsótti fjölskyldu og vini í Ástralíu á dögunum.

„Það var eins og hún væri í fríi frá vinnu, hún hagaði sér þannig,“ sagði ein vinkona hennar og bætti við að Bianca hafi klæðst peysukjól til að fara út að borða með fjölskyldunni, sem er gjörólíkt þeim klæðnaði sem hún er orðin þekkt fyrir.

„Þegar maður les allar fréttirnar um þau þá mætti halda að hún sé búin að missa vitið, þannig það var gott að sjá hana með fjölskyldunni sinni og sjá hana lík þeirri manneskju sem við þekkjum. Fötin voru aftur orðin eðlileg, það er ekkert sem bendir til þess að tími hennar með Kanye muni hafa langvarandi áhrif.“

Í febrúar var greint frá því að foreldrar hennar væru í uppnámi og óttuðust að rapparinn hefði fullkomna stjórn á henni eftir að myndir af henni ganga um nakin í gengsæjum regnjakka fóru í dreifingu um netheima.

Sjá einnig: Eiginkona Kanye West kviknakin undir gegnsæjum regnjakka

Vinkonur hennar trúa því að Bianca líti á tíma sinn með Kanye eins og einhvers konar starf sem „menntagyðja“ (e. muse) hans og þegar hún er í „fríi“ þá er hún aftur sama Bianca og áður.

Nokkrum dögum eftir heimsóknina var arkitektinn aftur komin við hlið rapparans og klædd ævintýralega litlum klæðnaði. Í þetta sinn í einhvers konar samfellu sem skildi afar lítið eftir fyrir ímyndunaraflið.

Page Six hefur áður greint frá því að Bianca lítur á klæðnað sinn sem „listagjörning.“

Fatastíllinn hefur breyst

Bianca er ástralskur arkitekt og byrjaði að starfa fyrir fyrirtæki Kanye, Yeezy, árið 2020. Þau hafa verið saman síðan byrjun árs 2023 og eru sögð hafa gifst við leynilega athöfn um miðjan janúar.

Sjá einnig: Vinkonur eiginkonu Kanye West hafa miklar áhyggjur af hegðun hennar – „Hún er ekki svona“

Fatastíll og útlit hennar hefur tekið rosalegum breytingum eftir að hún kynntist rapparanum en það er þekkt að Kanye hafi áhrif á klæðaburð eiginkvenna sinna og kærasta.

Í sumar voru Bianca og Kanye á ferð um Ítalíu og vakti klæðaburður hennar mikla athygli og talsverða reiði. Fjölmargir kölluðu eftir því að Bianca yrði handtekin fyrir að særa blygðunarsemi en hún klæddist litlu öðru en gegnsæjum sokkabuxum og litlum toppum. Eitt kvöldið gekk hún um með púða í stað þess að vera í bol.

Þau voru einnig sett í lífstíðarbann eftir ósæmilegt atvik á bát.

Sjá einnig: Heldur áfram að hneyksla á Ítalíu – Svona var fatastíllinn áður en hún giftist Kanye

Sjá einnig: Kanye West eyddi öllu af Instagram eftir að hafa birt mjög djarfa mynd af eiginkonunni

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Veðrið á Íslandi vekur mikla athygli – Margir væru til í að skipta við okkur

Veðrið á Íslandi vekur mikla athygli – Margir væru til í að skipta við okkur
Fókus
Í gær

Forsetafjölskyldurnar hittust á Bessastöðum

Forsetafjölskyldurnar hittust á Bessastöðum
Fókus
Fyrir 2 dögum

Stórstjarnan að mestu hætt neyslunni – Eitt getur hann ekki gefið upp á bátinn

Stórstjarnan að mestu hætt neyslunni – Eitt getur hann ekki gefið upp á bátinn
Fókus
Fyrir 2 dögum

Þekkir þú brúðhjónin á þessum myndum? – Ljósmyndara leitað

Þekkir þú brúðhjónin á þessum myndum? – Ljósmyndara leitað
Fókus
Fyrir 3 dögum

Þjófstartaði afmælinu með Bridgerton-þema – Eiginmaðurinn hvergi sjáanlegur

Þjófstartaði afmælinu með Bridgerton-þema – Eiginmaðurinn hvergi sjáanlegur
Fókus
Fyrir 3 dögum

„Var komin á þann stað að mér leið eins og ég væri að panta mér vanlíðan á Amazon“

„Var komin á þann stað að mér leið eins og ég væri að panta mér vanlíðan á Amazon“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Sex hversdagslegar kynlífsupplifanir sem karlmenn þrá en þora ekki að biðja um

Sex hversdagslegar kynlífsupplifanir sem karlmenn þrá en þora ekki að biðja um
Fókus
Fyrir 4 dögum

Ferill Katy Perry riðar til falls eftir heimskulegar ákvarðanir

Ferill Katy Perry riðar til falls eftir heimskulegar ákvarðanir