Live Science segir að tugir áa í Alaska hafi orðið skærappelsínugular á síðustu árum vegna eiturefna sem losna úr sífreranum. Þessi litríka mengun getur hugsanlega verið ávísun á martröð fyrir vistkerfið.
Í nýrri rannsókn, sem hefur verið birt í vísindaritinu Communications Earth & Environment, er skýrt frá að minnsta kosti 75 appelsínugulum ám og lækjum á svæði, sem er á stærð við Texas, í Brooks fjallgarðinum í Alaska. Flestar árnar uppgötvuðust þegar flogið var yfir svæðið í þyrlu.
„Þeim mun meira sem við flugum um, þeim mun fleiri appelsínugular ár og læki sáum við,“ er haft eftir Jon O´Donnell, vistfræðingi hjá National Park Service‘s Arctic Inventory and Monitoring Network, í yfirlýsingu.
Efnagreining á vatninu leiddi í ljós að í því var mikið magn af sinki, kopar, nikkel og kadmíum sem og járni en það á mesta sök á appelsínugula litnum. Einnig kom í ljós að vatnið var óvenjulega súrt. Ph-gildið í sumum af minni lækjunum var aðeins 2,3 en það er svipað og sýrustig sítrónusafa og ediks.