Hefur loftsteinninn þá lent inn í þyngdaraflssvið Mars fyrir löngu og verið á braut um plánetuna síðan þá.
Þetta kemur fram í nýrri rannsókn að sögn Live Science.
Vísindamenn hafa lengi velt vöngum yfir uppruna Phobos og Deimos, sem er annað tungl á braut um Mars og er oft sagt vera tvíburasystkin Phobos.
Sú kenning hefur verið sett fram að tunglin séu fyrrum loftsteinar sem lentu í þyngdaraflssviði Mars. Er þessi kenning byggð á því að efnasamsetning þeirra er svipuð og svipaðra loftsteina í aðalloftsteinabeltinu á milli Mars og Júpíter.
Önnur kenning er að eitthvað stórt hafi lent í árekstri við Mars, svipað og átti sér stað þegar tunglið okkar myndaðist, og hafi tunglin tvö brotnað úr Mars. En þetta er mjög ólíklegt því efnasamsetning Phobos er önnur en efnasamsetning Mars.