Breyting hefur verið gerð á leikmannahópi karlalandsliðsins fyrir vináttuleikina við England og Holland. Orri Steinn Óskarsson, sóknarmaður FC Kaupmannahafnar, er meiddur og getur ekki verið með. Í hans stað kemur Sævar Atli Magnússon, sóknarmaður Lyngby.
Orri átti frábært tímabil með FCK og hefur verið orðaður við stórlið á borð við Atalanta. Hann fær þó ekki að spreyta sig gegn stórliðum Englands og Hollands vegna meiðslanna.
Ísland mætir Englandi á föstudag í London og Hollandi á mánudag, sömuleiðis ytra.
Breyting hefur verið gerð á leikmannahópi A landsliðs karla fyrir vináttuleikina við England og Holland. Orri Steinn Óskarsson er meiddur og getur ekki verið með. Í hans stað kemur Sævar Atli Magnússon. pic.twitter.com/Tc2gxmZjZS
— Knattspyrnusambandið (@footballiceland) June 4, 2024