fbpx
Mánudagur 15.júlí 2024
Fókus

„Við stefnum einfaldlega í þá stöðu að ekkert kerfi mun ráða við þetta. Heilbrigðiskerfin munu sligast“

Fókus
Mánudaginn 3. júní 2024 12:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kristján Þór Gunnarsson læknir, segir tíma til kominn að ræða lifnaðarhætti í samfélaginu okkar. Við séum stödd í faraldri samfélags- og lífsstílssjúkdóma og erum sífellt að verða veikari. Þetta kom fram í podcasti Sölva Tryggvasonar þar sem Kristján er nýjasti geturinn.

,,Við erum nú þegar í faraldri samfélags- og lífsstílssjúkdóma. Ef við tökum bara nokkrar tölur, þá eru 70% Íslendinga í yfirþyngd eða offitu. 30 prósent barna eru í yfirþyngd eða offitu. Sykursýki tvö hefur verið að rjúka upp, hjarta- og æðasjúkdómar sömuleiðis og svo er það andlega hliðin. Þunglyndi, kvíði, streita, kulnun og fleira. Þar er líka faraldur í gangi og það er augljóst að eitthvað mikið þarf að breytast.

Ég sem heimilislæknir hef verið að skoða þetta mikið í mínum störfum og geri mitt besta til að reyna að greina þetta og hjálpa fólki eins og ég get. Fyrir mér eru þetta einkum fimm þættir. Það er matarræði, hreyfingarleysi, langvinn streita, of lítill eða lélegur svefn og svo náttúruleysi eða of lítill tími í náttúru og beru lofti”

Lifnaðarhættir breyttust á ljóshraða

Kristján segir manneskjuna ekki hannaða fyrir þá lifnaðarhætti sem þykja eðlilegir í dag.

,,Samfélagið sem við erum búin að sníða okkur er orðið uppfullt af streitu og hraða, of miklum skjátíma, gjörunnum matvælum og fleiri hlutum sem gera okkur ekki gott. Við höfum gleymt því að við erum lífverur sem höfum verið í okkar náttúrulega umhverfi í þúsundir ára. Í tugþúsundir ára var þetta nánast alveg eins, svo hefur þetta breyst gríðarlega hratt, sérstaklega frá iðnbyltingunni. En á síðustu 50 árum hafa lifnaðarhættir okkar breyst á ljóshraða.

Í grunninn erum við sömu lífverur og við höfum alltaf verið, en allt í umhverfinu er búið að breytast og tölurnar tala sínu máli. Við erum ekki hönnuð fyrir að borða gervimat, vera í gervibirtu og hafa stanslaust aðgengi að verksmiðjuframleiddum mat í 24 tíma á sólarhring. Við verðum að gera eitthvað til að breyta þessu. Ef við myndum bjóða dýrum upp á lifnaðarhættina okkar á vesturlöndum almennt yrðum við líklega kærð fyrir dýraníð.”

Að sögn Kristjáns er staðan orðin grafalvarleg. Ef áfram heldur sem horfi muni ekkert heilbrigðiskerfi á jörðinni ráða við álagið.

,,Um 80% af kostnaði heilbrigðiskerfa í Evrópu er vegna þess sem kallað er ósmitbærir sjúkdómar. Það sem hefur verið kallað lífsstílssjúkdómar, en ég vil frekar kalla samfélagssjúkdóma. Og þetta er bara á leiðinni beint upp, þannig að við stefnum einfaldlega í þá stöðu að ekkert kerfi mun ráða við þetta. Heilbrigðiskerfin munu sligast ef við gerum ekki eitthvað í málunum. Fyrir mér verðum við að byrja miklu fyrr á forvörnum og grípa inn í áður en fólk er komið með þessa sjúkdóma og skaðinn er skeður.”

Verðum að taka samtalið

Hægt og rólega hafi fólk vanist lífsháttum sem eru því ekki eðlileg. Það sé orðið eðlilegt að borða óhollan mat, verja of miklum tíma fyrir framan skjáinn, sofa of lítið og margt annað.

,,Það er bara afstætt hvað við teljum eðlilegt eða ,,normal”. Við verðum samdauna einhverju sem er kannski bara mjög óeðlilegt, en smám saman fer okkur að finnast það eðlilegt. Hvort sem það er að vera með aðgang að unnum mat í 24 tíma á dag, keyrsla á of litlum svefni og orkudrykkjum, eða bara hraðinn í samfélaginu almennt. Við höfum hægt og rólega verið að breyta öllu í okkar lifnaðarháttum án þess að fara í gagngera umræðu um hvar það endar.

Eitt er svo hvert við fullorðna fólkið erum komin, en svo er alveg önnur umræða sem snýr að börnum. Við sjáum aukin svefnvandamál, kvíða og margt fleira hjá börnum og unglingum. Ef við fullorðna fólkið eigum erfitt með að stýra notkun okkar á símum og því hvernig við borðum, getum við rétt ímyndað okkur hversu erfitt þetta er fyrir börn. Ég held að það vakni enginn krakki eða unglingur og ákveði að vera 8 tíma á TikTok þann daginn. En algóritmarnir eru hannaðir þannig að þau eiga lítinn séns,”

Kristján kallar eftir því að hér á Íslandi verði tekin umræða um þessa stöðu. Við erum lítið samfélag og því í góðri stöðum til að horfast í augu við hlutina og reyna að grípa inn í þessa hættulegu þróun.

,,Ég hef stundum tekið á mig að vera leiðinlegi kallinn þegar kemur að því að benda á slæman lífsstíl og áhrif gjörunninna matvæla. Það verður einhver að taka að sér það hlutverk að tala um þessa hluti eins og þeir eru. Margt sem ég lærði í mínu grunnnámi er orðið úrelt og við vitum betur núna. Vísindi eru mannanna verk og taka breytingum. Við sjáum hvernig þróunin hefur verið á undanförnum áratugum í hinum vestræna heimi og það er augljóst að við verðum að gera eitthvað til að grípa í taumana og búa til samfélög þar sem lífsstíll okkar verður heilbrigðari.”

Hægt er að nálgast viðtalið við Kristján og öll viðtöl og podköst Sölva Tryggvasonar inni á solvitryggva.is

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Harry og Meghan fá á baukinn fyrir nýja ,,áhugamálið“ í Bandaríkjunum

Harry og Meghan fá á baukinn fyrir nýja ,,áhugamálið“ í Bandaríkjunum
Fókus
Fyrir 3 dögum

Frosti úthúðar fyrrverandi vinnufélaga sínum

Frosti úthúðar fyrrverandi vinnufélaga sínum
Fókus
Fyrir 4 dögum

Tinder ekki að gefa? – Kannski Bænder sé málið

Tinder ekki að gefa? – Kannski Bænder sé málið
Fókus
Fyrir 4 dögum

Haukur Már skipti út frönskum og fékk kvörtun nakinn í World Class – „Ég hef svona semi fengið morðhótanir“

Haukur Már skipti út frönskum og fékk kvörtun nakinn í World Class – „Ég hef svona semi fengið morðhótanir“