ON-Venue
Gamla Bíó – Forkeppni í Íslandsmeistaramóti barþjóna og Íslandsmóti með frjálsri aðferð í Gamla Bíó. Samhliða því verða helstu vínbirgjar landsins með kynningar á sínum vörum. Þetta er viðburður sem enginn ætti að láta framhjá sér fara. Miðasala á viðburðinn fer fram á tix.is og við inngang og kostar einungis 1.000 kr. inn.
Center Hótels Plaza – Master Class þar sem 8 mismunandi fyrirlestrar verða jafnt frá innlendum sem og erlendum sérfræðingum sem munu veita okkur fróðleik um vín auk þess sem vínbirgjarnir verða með kynningar á sínum vörum. Miðasala fer fram á tix.is og við inngang og kostar einungis 1.000 kr. inn.
Gamla Bíó – Úrslitakeppni í Íslandsmóti barþjóna og Íslandsmóti með frjálsri aðferð og um Reykjavík Cocktail Weekend drykkinn. Sérstakur Reykjavík Cocktail Weekend matseðill verður í boði fyrir matargesti. Anna Svava verður með lauflétt uppistand og Siggi Hlö mun halda uppi fjörinu fram á nótt. Úrslit verða kynnt um kl. 22:30. Húsið opnar kl 18:30. Úrslitin hefjast kl. 19:00 og standa til kl. 20:00. Aðgangseyrir er 1.000 kr. Húsið opnar kl 20:00 fyrir matargesti með fordrykk í anddyri Gamla Bíós. Aðgangseyrir 6.900 kr.
Nánari dagskrá um OFF Venue viðburði helgarinnar má sjá á www.bar.is.