fbpx
Þriðjudagur 16.júlí 2024
Fréttir

Steindór borgaði 150 þúsund krónur til að fá að vita það sem hann vissi

Ragna Gestsdóttir
Fimmtudaginn 30. maí 2024 11:30

Mynd: Unsplash.com

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Ég borgaði 150 þúsund krónur fyrir sálfræðiaðstoð til að fá að vita það sem ég vissi, að ég væri með ADHD, enga ráðgjöf eða stuðning bara „það er fullt af lesefni á netinu“. Líf mitt litast af mistökum, ég hef lagt fjárhagslegar byrðar á náið fólk, misnotað fíkniefni og svo mætti lengi telja. Loks þegar ég ákveð að leita mér hjálpar til að taka á þessum málum þá var litla hjálp að fá,“

segir Steindór Þórarinsson viðurkenndur markþjálfi í pistli á Vísi.

Segist hann hafa verið 42 ára þegar hann fékk greiningu hjá þessum sálfræðingi. „Ég veit ekki alveg fyrir hvað ég var að borga samt. Ég hefði allt eins getað tekið þetta próf á netinu því sálfræðigreining dugir ekki til. Það þarf mat geðlæknis og bið eftir slíkum er óralöng. Ég gafst því upp á að bíða og ákvað að lesa allt sem ég fann og hjálpa mér sjálfur með stuðningi aðstandenda og þrjóskuna að vopni.“

Steindór segir ekki alla svona heppna. „Við höfum ekki öll stuðning til að hjálpa okkur sjálf eða þrjóskuna og þorið. Sum verða að fá meiri aðstoð en það og hana er afar erfitt að finna ásamt því að bið eftir aðstoð fagfólks getur varað lengur en í ár allt upp í fjögur ár. Á sama tíma segir landlæknir að viðmiðunarmörkin séu 30 daga bið.“

Steindór Þórarinsson

Víða pottur brotinn í geðheilbrigðismálum

Steindór rekur eins og margoft hefur komið fram að víða er pottur brotinn í geðheilbrigðismálum. „Það er erfitt að komast á geðdeild, það er bið eftir meðferð á Vogi, það vantar úrræði fyrir fólk með fíknivanda, það er meira en árs bið eftir ADHD greiningu, það er flókið að komast að hjá sálfræðingi og það er dýrt að leita sér hjálpar svo fátt eitt sé nefnt. Þetta eru bara brotabrot af þeim hindrunum sem eru á vegi fólks sem þarf að nýta þjónustu geðheilbrigðiskerfisins.“

Steindór segir að víða um land „er svo fullt af flottu fólki sem vill gera vel, gerir vel og reynir að bæta úr og koma með lausnir, en einhverra hluta vegna hefur ekki tekist að leiða þau saman til samtals og finna heildstæð lausn á geðheilbrigðismálum.

Steindór segir að þessu sé hægt að breyta, „með því að kjósa Baldur Þórhallsson til forseta þá vörpum við birtu og ljósi á málaflokkinn. Á stefnuskrá Baldurs er að kalla saman allt það góða fólk sem starfar í málaflokknum, setjast niður með þeim og leita lausna. Baldur vill setja mælanleg markmið og fylgja þeim eftir. Baldur hefur sjálfur reynslu af kerfinu sem aðstandandi og eftir því sem ég kynni mér málflutning hans betur þeim mun sannfærðari er ég í þeirri trú minni að hann eigi eftir að standa við það sem hann segir.

Við sem þekkjum til geðheilbrigðismála af eigin raun vitum hversu mikilvægt það er að leysa úr þeim flækjum sem þar blasa við. Við þurfum á manni eins og Baldri að halda til að greiða úr þessum flækjum. Kjósum Baldur á Bessastaði og tökum höndum saman um að gera þessa þjóð að fyrirmynd annarra þjóða í málaflokknum. Þannig getum við haft áhrif á geðheilsu fólks, bæði hér heima og um heim allan.“

Pistilinn má lesa í heild sinni hér.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Dómarinn rifjaði upp langan brotaferil Kourani – Hefur aldrei stundað vinnu á Íslandi

Dómarinn rifjaði upp langan brotaferil Kourani – Hefur aldrei stundað vinnu á Íslandi
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Auglýsingin fræga á Laugaveginum að hverfa – „Hræðilegt það er verið að byrja að mála yfir þetta“

Auglýsingin fræga á Laugaveginum að hverfa – „Hræðilegt það er verið að byrja að mála yfir þetta“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

„Það er siðferðislega óásættanlegt að þessu tjóni verði eingöngu velt yfir á íbúa í Vestmannaeyjum “

„Það er siðferðislega óásættanlegt að þessu tjóni verði eingöngu velt yfir á íbúa í Vestmannaeyjum “
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Íslendingur dæmdur í þriggja mánaða fangelsi í Danmörku fyrir að kýla unnustu sína margsinnis á bílastæði

Íslendingur dæmdur í þriggja mánaða fangelsi í Danmörku fyrir að kýla unnustu sína margsinnis á bílastæði