fbpx
Þriðjudagur 16.júlí 2024
Fréttir

Grindavík við það að lokast inni – Nýtt gosop bæst við

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 29. maí 2024 17:46

Hraunið séð ofan af Þorbirni. Skjáskot/vefmyndavél RÚV

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eldgosið austan við Sýlingafell sem hófst fyrr í dag heldur áfram og hraunflæðið verið meira en í fyrri gosum í þeirri hrinu sem staðið hefur yfir síðan í lok síðasta árs. Eins og staðan er núna virðist stefna í að allir vegir til Grindavíkur lokist vegna hraunflæðis og að þar með verði landleiðin til bæjarins ófær með öllu.

Á Facebook-síðu Vegargerðinnar segir að rétt í þessu hafi Nesvegur farið undir Hraun.
Hraun hafi fyrr í dag runnið yfir Grindavíkurveg norðan við Grindavíkurbæ. Norðurljósavegur sé einnig farinn undir hraun.

Þá flæði hraun í áttina að Suðurstrandarvegi.

Magnús Tumi Guðmundsson prófessor í jarðeðlisfræði segir í samtali við RÚV að hraunrennsli hafi í upphafi gossins verið allt að tvöfalt meira en í síðasta gosi. Styrkur gossins sé enn töluverður en farið sé að draga úr því. Hann vill meina að varnargarðar við Grindavík haldi vel þar sem hraunið sé þunnfljótandi.

Víðir Reynisson sviðstjóri Almannavarna tjáði RÚV að það væri ekki óhugsani að hraun renni inn í Grindavík. Það sé farið að renna utan í varnargarðana á nokkrum stöðum og einnig utan í varnargarðana við Svartsengi.

Ljóst er að Suðurstrandarvegur er nú eini vegurinn til Grindavíkur sem enn er fær en Víðir telur ekki ósennilegt að hraun flæði yfir veginn í kvöld haldi hraunflæði áfram á sama hraða. Gerist það verða allir vegir til Grindavíkur lokaðir.

Uppfært 18:22

Eldfjalla- og náttúruvárhópur Suðurlands greinir frá því á Facebook-síðu sinni að annað gosop hafi opnast milli klukkan 17 og 18 við varnarvegginn norðan Grindavíkur. Ekki hafi gosið svona sunnarlega síðan í eldgosinu í janúar, þegar gossprunga opnaðist þvert í gegnum garðinn.

Þessi opnun komið nokkuð á óvart enda hafi þegar slokknað í löngum hlutum sprungunnar sem opnaðist um hádegisbilið í dag. Sýni þetta hinsvegar hve óútreiknanleg þróunin sé fyrstu tímana.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Árekstur þriggja bíla við Hamraborg – Dælubíll og þrír sjúkrabílar sendir á vettvang

Árekstur þriggja bíla við Hamraborg – Dælubíll og þrír sjúkrabílar sendir á vettvang
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Fjárfestar hafa sölsað undir sig tæplega 90% seldra íbúða á árinu – „Þetta er ógeðslegt þjóðfélag, þetta er allt ógeðslegt“

Fjárfestar hafa sölsað undir sig tæplega 90% seldra íbúða á árinu – „Þetta er ógeðslegt þjóðfélag, þetta er allt ógeðslegt“
Fréttir
Í gær

Bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins styður ekki Coda Terminal verkefnið við Vellina – Þyrfti aðkomu minnihlutans til að koma málinu í gegn

Bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins styður ekki Coda Terminal verkefnið við Vellina – Þyrfti aðkomu minnihlutans til að koma málinu í gegn
Fréttir
Í gær

Líkfundur á Tenerife í tengslum við leitina að Jay Slater

Líkfundur á Tenerife í tengslum við leitina að Jay Slater
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Harmleikur í hitabylgju – Gleymdi tveggja ára dóttur sinni úti í bíl með hræðilegum afleiðingum

Harmleikur í hitabylgju – Gleymdi tveggja ára dóttur sinni úti í bíl með hræðilegum afleiðingum
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Guðrún ætlar ekki að flytja inn í Biskupsgarð – Agnes flytur út og glæsihýsið verður selt

Guðrún ætlar ekki að flytja inn í Biskupsgarð – Agnes flytur út og glæsihýsið verður selt