fbpx
Laugardagur 27.júlí 2024
Pressan

Ása Guðbjörg má snúa aftur heim eftir ítarlega leit lögreglu sem beindist sérstaklega að kjallaranum – Börnin verja óhugnanlega bók sem fannst á eldhúsborðinu

Pressan
Miðvikudaginn 29. maí 2024 15:34

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lögreglan á Long Island hefur lokið ítarlegri  húsleit á heimili meinta raðmorðingjans Rex Heuermann og eiginkonu hans, Ásu Guðbjargar Ellerup. Þar bjuggu hjónin með dóttur sinni, Victoriu og syni Ásu úr fyrra sambandi, Christopher, þegar Rex var handtekinn síðasta sumar. Um leið og Rex var handtekin var Ásu og börnum vísað út af heimili þeirra á Long Island svo lögregla gæti framkvæmt þar umfangsmikla húsleit þar sem hverjum steini var snúið við og bakgarðurinn krafinn í sundur.

Það var svo í byrjun síðustu viku sem lögreglan mætti aftur að heimilinu með nýja húsleit. Ekki er ljóst hvað lögreglan telur leynast í húsinu eða hvort eitthvað hafi farið framhjá þeim á síðasta ári. Leitin stóð að þessu sinni yfir í rúma viku en nú hefur lögreglan lokið störfum og Ásu Guðbjörgu og börnum því heimilt að snúa aftur heim.

Að sögn erlendra miðla beindist leit lögreglu að þessu sinni að kjallaranum á heimilinu. Lögmaður Ásu, Robert Macedonio, segir að í fyrra hafi lögregla snúið öllu á hvolf og skilið heimilið eftir í rúst. Að þessu sinni var það bara kjallaranum sem var rústað en litlu hreyft við á öðrum stöðum.

„Ég hef ekki hugmynd um hvaða rökstuddu grunsemdir þeir  höfðu fyrir því að leita þarna, en ég reikna með því að það hafi rúmast innan úrskurðar um húsleit,“ sagði Macedonio við Independent. Lögmaðurinn segist hafa sínar eigin hugmyndir um hvað vakti fyrir lögreglu, en honum sé að svo búnu ekki heimilt að tjá sig um það.

Heimildarmenn innan lögreglunnar sögðu við Fox News að enn megi á heimilinu finna óhugnanlega bók sem kallast Death Scenes: A Homicide Detective’s Scrapbook. Bókin sé geymd á eldhúsborðinu. Þar má finna myndir af vettvangi morða, og myndir af þeim myrtu.

Lögmaður Victoriu og Christopher segir þau ekki kannast sérstaklega við þessa bók. „Það er ekki ólöglegt að eiga bækur“.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 5 dögum

Ævintýraferðin breyttist í martröð – Hjónin fundust látin í björgunarbát sex vikum síðar

Ævintýraferðin breyttist í martröð – Hjónin fundust látin í björgunarbát sex vikum síðar
Pressan
Fyrir 6 dögum

Sakamál: Hryllingur í smábæ – Dóttirin stumraði yfir líki móður sinnar

Sakamál: Hryllingur í smábæ – Dóttirin stumraði yfir líki móður sinnar
Pressan
Fyrir 1 viku

Einn eftirlýstasti strokufangi Bandaríkjanna sigldi undir fölsku flaggi í 30 ár

Einn eftirlýstasti strokufangi Bandaríkjanna sigldi undir fölsku flaggi í 30 ár
Pressan
Fyrir 1 viku

Árásarmaðurinn ætlaði sér ekki að deyja

Árásarmaðurinn ætlaði sér ekki að deyja
Pressan
Fyrir 1 viku

Loftslagsbreytingar hafa áhrif á tímann samkvæmt nýrri rannsókn – „Þetta er vitnisburður um alvarleika loftslagsbreytinga“

Loftslagsbreytingar hafa áhrif á tímann samkvæmt nýrri rannsókn – „Þetta er vitnisburður um alvarleika loftslagsbreytinga“
Pressan
Fyrir 1 viku

Ökumaður Teslubifreiðar lenti í árekstri og missti stjórn á bílnum í kjölfarið – Sjáðu magnað myndband

Ökumaður Teslubifreiðar lenti í árekstri og missti stjórn á bílnum í kjölfarið – Sjáðu magnað myndband
Pressan
Fyrir 1 viku

600 ára gamall texti líkist vel þekktum texta frá síðari tímum

600 ára gamall texti líkist vel þekktum texta frá síðari tímum
Pressan
Fyrir 1 viku

Er leitinni að Plánetu níu að ljúka?

Er leitinni að Plánetu níu að ljúka?